Tónlist

Sérsmíðaðar heyrnarvarnir, sniðnar að þörfum tónlistarfólks.

Flokkur:

Lýsing

Starfar þú við tónlist eða ferð oft á tónleika og tónlistarhátíðir?

Ef svo er þá er líklegt að þú sért í umhverfi þar sem hljóðstyrkur fer upp í 100-125 dB. Hefur þú upplifað suð fyrir eyrunum (Tinnitus) eftir tónleika eða bíósýningu? Mikilvægt er að nota heyrnarvarnir til að komast hjá því að fá varanlega heyrarskerðingu og/eða eyrnasuð.

Heyrnarvarnirnar eru sérstaklega hannaðar með tónlist í huga. Þær eru framleiddar eftir nákvæmu máti af eyrum notandans sem tryggir að þær sitja þétt og þægilega í eyrunum. Það er mjög hreinlegt að nota heyrnarvarnirnar og auðvelt að þrífa þær með vatni. Heyrnarvarnirnar hafa þá eiginleika að dempa línulega yfir allt heyrnarsviðið og þannig upplifir notandinn tónlistina eins og áður en við lægri hljóðstyrk.

Hægt er að velja á milli mismunandi dempunarsía. Myndirnar hér til hægri sýna dempunina fyrir mismunandi tegundir dempunarsía. Auðvelt að að skipta um dempunarsíurnar og hægt er að kaupa aukasíur ef þörf er á mismunandi dempun við ólík skilyrði.

Heyrnarvarnirnar henta öllum tónlistarunnendum, ungum sem öldnum, tónlistarmönnum, hljóðmönnum og aðilum sem starfa við tónleikahald.

Viðbætur

  • NanoScreen™ Mjúk lakkáferð*
  • Silkimött áferð
  • SoftTouch lakkáferð**
  • Merking fyrir hægra og vinstra eyra
  • Sérmerking (að hámarki 24 stafir)
  • Stálkúla fyrir málmgreiningartæki
  • Hálsól
  • Hálsól fyrir málmgreiningartæki
  • Klemma fyrir kraga
  • Hálsól með töppum, glær*
  • Verkfæri til að fjarlægja dempunarsíur

*Aðeins í boði fyrir heyrnarvarnir úr sílikoni
**Aðeins í boði fyrir heyrnarvarnir úr akrýl

Go to Top