Phonak Audéo Lumity
Audéo Lumity heyrnartækin auðvelda þér að heyra í krefjandi hlustunaraðstæðum. Tækin eru forrituð með gervigreind til að greina og aðlagast umhverfisaðstæðum svo þú getir einbeitt þér betur að samræðum.
Með myPhonak smáforritinu (app) getur þú síðan aukið á talfókusinn og fínstillt tækin í rauntíma ef þér finnst þörf á því.
Hægt er að fá tækin með endurhlaðanlegum rafhlöðum sem endast allan daginn,* en einnig er hægt að fá þau með einnota rafhlöðum. Í boði er að fá tækin með tónmöskva og þá getur tækin tengst tónmöskvakerfum sem eru t.d. í leikhúsum og tónleikasölum.
Audéo Lumity Life heyrnartækin henta allt frá vægri til mikillar heyrnarskerðingar.
- Auðveldari heyrn í mismunandi aðstæðum
- Alhliða tengimöguleikar með Bluetooth®
- Skráning heilbrigðisupplýsinga**
- Val um endurhlaðanlegar eða einnota rafhlöður
- MyPhonak smáforritið (app) á íslensku.
Audéo Lumity heyrnartækin koma í þremur mismunandi útfærslum og fást í 11 mismunandi litum.
Verð frá 159.000-269.000 með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands
Verð frá 219.000-329.000 án greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands
Nánar um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands og aðra styrki.
*16 klst. hleðsla, þar af meðaltali 8 klst. af daglegri hlustun, 4 klst. af Bluetooth streymi og 4 klst. af sjónvarpsstreymi.
**Til þess að fá aðgang að heilsufarsgögnum er nauðsynlegt að stofna aðgang í myPhonak smáforritinu (appinu).