Phonak Audéo Sphere Infinio

Láttu þér líða betur

Að heyra snýst ekki einungis um eyrun heldur einnig um heilann. Heyrnin er mikilvæg til að við náum tengingu við umhverfi okkar, upplifum öryggi og til að okkur líði vel í mismunandi aðstæðum.
Nýlegar rannsóknir hafa sýnt fram á jákvæða fylgni milli bættrar heyrnar, aukinna vitrænna hæfileika og aukinna félagslegra samskipta.

Audéo Sphere Infinio er fyrsta heyrnartækið í heiminum með gervigreindar (AI) örflögu.
Í fyrsta skiptið í framleiðslu heyrnartækja notar Phonak gervigreindar-/djúptauganetsörflögu, DEEPSONIC.

DEEPSONIC (Deep Sound Optimized Neural Integrated) gervigreindarflagan er bylting við framleiðslu heyrnartækja þar sem hún eykur hlustunarsviðið úr öllum áttum og skilar óviðjafnanlegum skýrleika í tali þegar tækið aðgreinir tal frá hávaða.

Audéo Sphere Infinio heyrnartækin skila þér einstaklega skýru tali, óháð hvaðan talið kemur og síar burtu hávaða frá tali. Þetta gerir þér kleift að eiga gæða samskipti við vini, fjölskyldumeðlimi eða samstarfsmenn jafnvel í mjög hávaðasömu umhverfi.

Audéo Sphere Infinio heyrnartækin marka ný tímamót hvað tækni varðar við framleiðslu heyrnartækja.

  • Fyrsta heyrnartækið í heiminum með Djúptauganets-örflögu „Dedicated Deep Neural Network (DNN) chip“.*
  • Eykur hlustunarsviðið úr öllum áttum.
  • Alhliða tengimöguleikar.
  • Svissnesk verkfræði eins og hún gerist best, hönnuð fyrir áreiðanleika.

 * Djúp tauganet (DNN) er flokkur vélrænna reiknirita sem líkist taugakerfi og miðar að því að líkja eftir upplýsingavinnslu heilans.

Audéo Sphere Infinio með DEEPSONIC

  • 53x meiri vinnslukraftur.
  • 22M hljóðsýni notuð við þjálfun.
  • 7700 M aðgerðir á sekúndu.

Með myPhonak smáforritinu (app) sem er á íslensku getur þú síðan aukið á talfókusinn og fínstillt tækin í rauntíma ef þér finnst þörf á því.

Audéo Sphere Infinio heyrnartækin parast við myPhonak snjallsímaforritið og gerir notendum heyrnartækjanna kleift að sérsníða heyrnarupplifun sína.

Í myPhonak snjallsímaforritinu er hægt að fylgjast með hleðslunni á rafhlöðunum í heyrnartækjunum, stilla og stjórna hljóðstyrk tækjanna og sérsníða hljóðið að þörfum hvers og eins. Einnig er hægt að búa til sérsniðin stilliforrit.

Fjarþjónusta „Remote Support“. Hægt er að fjarstilla heyrnartækin í gegnum myPhonak snjallsímaforritið í rauntíma í gegnum myndbandssamtal.

Hægt að nota heyrnartækin sem handfrjálsan búnað við síma og annan Bluetooth® búnað og sem heyrnartól.

Audéo SphereTM Infinio heyrnartækin geta tengst fleiri Bluetooth® tækjum en nokkur önnur heyrnartæki á markaðnum og eru ekki eingöngu bundin við OS eða Android. Hin nýja extra hraðvirka ERA örflagan veitir stöðuga tengingu í handfrjálsu samtali og tvöfaldar fjarlægðina sem tækin geta streymt.

  • Hægt að para allt að átta Bluetooth® tæki og geta tvö tæki verið tengd samtímis.
  • Skipta á áreiðanlegan hátt á milli hljóð- og streymisspilunar.
  • Koma með innbyggðum RogerDirect móttakara til að bæta heyrnarskilyrði enn frekar í hávaða og fjarlægð.

Með því að slá létt á eyrað „tab-control“ er hægt að svara í símann eða slíta samtali. Hljóðnemar heyrnartækjanna eru notaðir til að nema tal notanda heyrnartækjanna í símtali.

Roger er þráðlaus tækni frá Phonak sem sendir tal beint til Audéo Sphere Infinio heyrnartækja sem auðveldar verulega heyrn þegar kemur að hljóði í fjarlægð og í hávaða.

Audéo Sphere Infinio heyrnartækin henta allt frá vægri til mikillar heyrnarskerðingar.

Audéo Sphere Infinio heyrnartækin koma í fjórum mismunandi útfærslum og fást í 11 mismunandi litum.

Hjá Heyrðu er hægt er hægt að fá heyrnartæki lánuð til prufu í þrjár vikur, endurgjaldslaust.

Verð frá x-x með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands

Verð frá x-x án greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands

Nánar um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands og aðra styrki.

SENDA FYRIRSPURN

Athugið að ekki er um að ræða bókanir hjá háls-, nef- og eyrnalækni.