- Raka og svitaheld
- Vatnsheld í allt að ½ m dýpi
- Endurhlaðanleg, endast allan daginn*
- Alhliða tengimöguleikar með Bluetooth®
Phonak Audéo Lumity Life
Lýsing
Audéo Lumity Life er önnur kynslóðin af fyrstu vatnsheldu heyrnartækjunum í heiminum. Tilvalin lausn fyrir alla með virkan lífsstíl þar sem heyrnartækin eru útsett fyrir krefjandi umhverfisaðstæður.
Audéo Lumity Life heyrnartækin auðvelda þér að heyra í krefjandi hlustunaraðstæðum. Tækin eru forrituð með gervigreind til að greina og aðlagast umhverfisaðstæðum svo þú getir einbeitt þér betur að samræðum.
Með myPhonak smáforritinu (app) getur þú síðan aukið á talfókusinn og fínstillt tækin í rauntíma ef þér finnst þörf á því.
Audéo Lumity Life heyrnartækin henta allt frá vægri til mikillar heyrnarskerðingar.
- Raka og svitaheld
- Vatnsheld í allt að ½ m dýpi
- Endurhlaðanleg, endast allan daginn*
- Alhliða tengimöguleikar með Bluetooth®
- Þráðlaus tenging við sjónvarp með Phonak TV Connector
- Samhæfð með Phonak Roger hljóðnemum
- Skráning heilbrigðisupplýsinga**
- Koma í þremur mismunandi útfærslum og fást í 11 mismunandi litum
- MyPhonak smáforritið (app) á íslensku.
Virk þátttaka í samræðum;
Audéo Lumity heyrnartækin eru hönnuð til að setja talskilning í forgang, jafnvel í erfiðum hlustunaraðstæðum.
- StereoZoom 2.0
Að einbeita sér að samtali í háværum aðstæðum þegar viðkomandi er þreytt/ur, getur verið virkilega krefjandi. StereoZoom 2.0 reikniforritið í Audéo Lumity heyrnartækjunum aðlagar talfókusstyrkinn eftir því sem styrkur umhverfishávaðans eykst. Einnig er hægt að stilla fókusstyrkinn í rauntíma með MyPhonak smáforritinu í snjallsímanum.
- Talskynjari (Speech Sensor)
„SpeechSensor“ er reiknirit sem greinir úr hvaða átt aðal talmerkið kemur. Raunverulegur ávinningur þessa er að viðkomandi getur skilið tal 15% betur þegar mælt mál berst frá hlið/aftan auk 11% minni áreynslu við að heyra.
Tenging við snjallsíma og annan búnað;
Hægt að nota heyrnartækin sem handfrjálsan búnað við síma og annan Bluetooth® búnað og sem heyrnartól.
Með því að slá létt á eyrað „tab-control“ er hægt að svara í símann eða slíta samtali. Hljóðnemar heyrnartækjanna eru notaðir til að nema tal heyrnartækjanotandans í símtali.
- Roger™ hljóðnemar
Roger er þráðlaus tækni frá Phonak sem sendir tal beint til Audéo Lumity heyrnartækja sem auðveldar verulega heyrn þegar kemur að hljóði í fjarlægð og í hávaða.
- myPhonak snjallsímaforritið
Audéo Lumity heyrnartækin parast við myPhonak snjallsímaforritið sem er á íslensku og gerir heyrnartækjanotendum kleift að sérsníða heyrnarupplifun sína.
Í myPhonak snjallsímaforritinu er hægt að fylgjast með hleðslunni á rafhlöðunum í heyrnartækjunum, stilla og stjórna hljóðstyrk tækjanna og sérsníða hljóðið að þörfum hvers og eins og búa til stilliforrit.
Fjarþjónusta „Remote Support“. Hægt er að fjarstilla heyrnartækin í gegnum myPhonak snjallsímaforritið í rauntíma í gegnum myndbandssamtal.
Verð frá 159.000-299.000 með greiðsluþátttöku SÍ.
Verð frá 219.000-359.000 án greiðsluþátttöku SÍ.
Nánar um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands og aðra styrki.
*16 klst. hleðsla, þar af meðaltali 8 klst. af daglegri hlustun, 4 klst. af Bluetooth streymi og 4 klst. af sjónvarpsstreymi.
**Til þess að fá aðgang að heilsufarsgögnum er nauðsynlegt að stofna aðgang í myPhonak smáforritinu (appinu).